það hefur tóm augu drekkandi ódáinsveigar veitandi sýnir óhugnaðurinn, fegurðin allt þetta gall kjaftur þessi gleypir allt öllum sökkt er ofan í svaðið ormétnir líkamar engjast um hér er vaðið er í gegnum öskuna klökkar eru hendurnar líkkistur neglurnar engin handfesta finnst í kórónu keisarans finn ég á þessari stundu hvernig grafir okkar snertast hin dýrslega viska rekur í sundur sálir og magnar upp sáluhliðin helblóm spretta í augnatóftum þess í höfði skepnunnar eru svartir salir niðamyrkir gígar ærandi víddir þjáninga óteljandi það rís úr hafinu eins og krabbamein jarðarfararsálmur sem er leikinn á innyfli sultarhljóð sem fyllir himindjúpin án hugsunar þungt gnæfir þessi draummynd yfir alheimnum sem skinnhvítt rekald í hvítlogandi flæðarmáli stjarnanna andað inn sem myrkri dragsúg tómleikans sálnahirðir úr fjólubláum reyk sem með heljargreipum sínum fer um helgidóminn bakvið dánargrímu undir flogaveikum básunuþyt sannleikans eilífa djúp þar er bæli dýrsins vitfirring kæfð í reyk frýs blóðþyrst hjartað opnast dauðans gin hungurvofunnar slóð hún er kviðrist og köld hér hægist andardráttur sést frosin mánamóða þúsund stjörnur loga undir dökku kufli skarlatshjúp umlykur dauðans myrkur enni þess markað máttugum rúnum gullnir hlekkir glitra fannhvítir faðmar vinda tannhjólin sligast undan klukknanna þunga hljóm beinanna klið tungan er hljóð starir út í tómið og umritar ósagðar reglur slæðingur þessi sameinast óminnishegranum hugdettur um að vakna upp frá martröðinni hugmyndir um tilveru innan holds rifnar í sundur af hröfnum formlaust svífur sjálfið yfir vötnunum ferðast út úr helli ofskynjanna fyrst sem seiður út í gegnum gimsteinalagt höfuðið úr munni þess sem biturt tvíeggjað sverð með sex vængi alsetta augum sem vitnisburður sem sneiðir í sundur glerhafið skilin á milli raunveruleika og martraða lastmæling sem stígur upp úr undirdjúpum vímunnar ferðast í gegnum víddir frá holdi til spádómsorða sem kollvarpa hásætum