Allt annað líf Sjá þetta djásn. Dásamlegt er Akkúrat það sem mig vantaði hér Svo virðist vera sem mig, mig skorti ekki neitt Og sjá þennan sjóð, silfur og gull Skrýnin mín öll fyrir löngu orðin full Þú sérð það og hugsar með þér Vá, skortir ekki neitt Ég á allskonar ólíka muni Antikk nælu út látúni og leir Viltu líta aðeins á? Hundrað stykki! Hvað með það, ekkert mál. Ég vil meir! Ég vil sjá fólk, fá að snerta það Fýsir að sjá, ég vil sjá það dansa Gefa einhverjum undir... Hvað heitir það nú? Ó, fót Sporður og fit hrökkva ansi skammt Fætur ég þarf til þess að dansa Þeir meiga kalla mig... Hvað er orðið aftur? Snót! Upp alla leið, það er mín þrá Þangað sem sólin skín öll ár Þar er ég frjáls. Þar finn ég allt, allt annað líf! Ég gæfi flest fyrir að búa meðal manna Allt sem ég á fyrir smástund á sólarströnd Svo tel ég víst að uppi þar feðurnir ávíta ekki dætur Ég vil komast burt úr sænum og upp á land! Ég læri og les allt um mannlífið Legg fyrir spurningar, leita svara Hvað er eldur og hví kviknar... Hvað var það? Bál? Ó, hvað ég vil vera uppi þar Komast sem fyrst upp úr köldum mar! Ég þrái að, að hefja þar allt annað líf